4 dagar til stefnu :O)
2.10.2007 | 11:04
Erum farnar að finna fyrir spenningi fyrir ferðinni okkar. 4 dagar í gönguna miklu og bara 2 dagar þangað til við förum til New York. Spáin lítur vel út þannig að allt er þetta að smella saman. Við teljum að við séum komnar í alveg þokkalegt form enda allt 300 km ganga að baki. Erum búnar að fara í apótekið og kaupa þær birgðir sem okkur var bent á að gott væri að taka með. S.S plástra, hitakrem, vaselín, silkisokka og ýmislegt fleira. Vængur (4)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spáir vel í New York
1.10.2007 | 14:18
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Góður göngudagur í rigningu og roki á laugardaginn
1.10.2007 | 08:56
Við lögðum af stað um hádegi á laugardaginn til að hitta "Göngum saman" í Laugardalnum. Það var mjög gamna að hitta þær og fá góð ráð þar sem þær höfðu hitt NYC fara frá í fyrra nokkrum dögum áður og fengið hjá þeim ýmisar ráðleggingar. Við gengum niður Elliðaárdalinn í sæmilegu veðri en á leiðinn upp eftir aftur fengum við íslenska rokið í fangið og rigningu í kaupbæti. Það voru þreyttir og bautir fætur sem gengu síðasta spölinn upp brekkuna eftir 3 tíma göngu.
Vængur 3
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Elliðavatn
1.10.2007 | 08:50
Á sunnudeginum fórum við nokkrar og gengum hringinn í kringum Elliðavatn. Það tók okkur ca 2 klst. Veðrið var yndislegt. Erum alveg staðráðnar í því að halda göngum okkar áfram þegar heim er komið frá New York. kveðja Vængur (4)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Good things come to those who walk :-)
29.9.2007 | 19:48
Á síðu Avon er sagt "Good things come to those who walk". Þetta er svo sannarlega rétt fullyrðing. Síðan við ákváðum að vera með í þessari göngu hefur allt gengið stórkostlega. Fólk og fyrirtæki hafa tekið okkur ótrúlega vel og við finnum þvílíkan meðbyr undir gylltu vængina okkar. Í dag var það svo að við hittum fyrst stelpurnar í Göngum saman hópnum. Já og enn upplifum við að þessi fullyrðing er svo sannarlega rétt. Það var yndislegt að hitta stelpurnar, þær tóku okkur svo vel og það var frábært að finna hlýjuna í garð okkar Gylltu vængjana. Takk stelpur fyrir yndislegan dag. Vá og kröftugur er þjálfarinn þeirra það er sko ekkert slór þar.
Vængur 2 yfir og út.
p.s.
og aðeins til að monnast! Þá höfum við fengið boð frá Alræðisskrifstofunnni í New York með Göngum saman hópnum, til viðurkenningar á þátttöku okkar í göngunni.
Bloggar | Breytt 30.9.2007 kl. 05:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Greinar úr fréttablaðinu um brjóstakrabbamein á vefnum okkar.
28.9.2007 | 15:05
Fréttablaðið er að birta greinar þessa dagana í tilefni brjóstakrabbameinsdeginum hinn 22. október, þar rita ellefu krabbameinslæknar stuttar greinar um sjúkdóminn.
Á síðunni málefnið má lesa afrit af þessum greinum.
http://golfborgir.is/NYganga/malefnid.php
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10 dagar til stefnu
26.9.2007 | 11:56
Nú eru aðeins 10 dagar í stóra daginn þegar maður ætlar að henda sér í 42 km gönguna og 21 km daginn eftir . Æfingar hafa gengið vel en það hefði verið ágætt að byrja fyrr þar sem ýmis álagsmeiðsli hafa komið fram hjá hópmeðlimum. Allar erum við þó ákveðnar í því að fara þetta a.m.k á hörkunni!. Æfing í kvöld áætlað að ganga 2 klst.
garpur (4) og garpur (5)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Göngum saman hópurinn
25.9.2007 | 16:03
Í gær birti Kastljós umfjöllun um "gongumsaman" hópinn. Það er hreint ótrúlegt hvað þær eru duglegar. Við sendum þeim okkar bestu baráttukveðjur.
Skoðið hlekkinn hér að neðan
http://golfborgir.is/NYganga/malefnid.php
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4355262
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Prófa skóna
24.9.2007 | 18:23
Bloggar | Breytt 25.9.2007 kl. 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)