New York New York hver elskar ekki þessa borg :-)

Þá er stóra stundin runnin upp.  Við vöknuðum hér kl. 4:30 endurnærðar eftir svefninn en misupplagðar til að vakna svona snemmaSleeping . Við erum búnar að fara að öllum þeim ráðum sem við fengum að heiman, júgursmyrsl, púður, sólarvörn, plástrar og nefnið það bara.  Við myndum sóma okkur vel á vaxmyndasafni. 

Ganga hefst frá bryggju nr. 84 sem er hérna nálægt og við förum í leigubíl þangað og borðum morgunmat þar.

Gengið verður um Manhattan í dag og þaðan út í Brooklyn.  Við látum heyra betur í okkur og ætlum að reyna setja inn myndir í lok dags.

Við kveðjum í bili og fljúgum á okkar Gylltu vængjum inn í þessa stórkostlegu borg sem er um það bil að vakna til lífsins.

Golden Wings


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gangi ykkur rosalega vel, ég hugsa til ykkar í dag. Frábært framtak. Hlakka til að sjá myndir. Kv., Heiða.

Heiða (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 15:07

2 identicon

Kæra mamma, ég sakna þín voða mikið og vona að þér gangi vel að ganga. Mundu að fara í brennandi heitt bað í kvöld eins og pabbi. Þá gengur betur á morgun. Þín Katla.

Katla Margrét (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 16:32

3 identicon

Þið eruð ótrúlega duglegar - hlakka til að lesa um hvernig dagurinn gekk og sjá myndir.  Vonandi leikur veðrið við ykkur í undurfögru New York-inni

Bestu kveðjur Harpa - Icelandair félagi úr flugdeildinni

Harpa (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 21:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband